Forráðamenn Napoli hafa fundað með Rafael Benítez í London til að ræða þann möguleika að hann taki við sem næsti þjálfari liðsins.
Walter Mazzarri tilkynnti í gær að hann muni láta af störfum eftir fjögur ár við stjórnvölinn.
Walter Mazzarri tilkynnti í gær að hann muni láta af störfum eftir fjögur ár við stjórnvölinn.
Talið er að Benítez vilji helst taka við liði á Englandi en hann sagði í síðustu viku að hann væri þó tilbúinn að hlusta á önnur tilboð.
Benítez stýrði Chelsea í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar og til sigurs í Evrópudeildinni.



