Leikið var í norsku úrvalsdeildinni í dag. Íslendingaliðið Start var tekið í kennslustund á heimavelli, tapaði 0-6 fyrir Strömsgodset.
Matthías Vilhjálmsson lék fyrri hálfleikinn og Guðmundur Kristjánsson allan leikinn. Strömsgodset trónir á toppi deildarinnar.
Matthías Vilhjálmsson lék fyrri hálfleikinn og Guðmundur Kristjánsson allan leikinn. Strömsgodset trónir á toppi deildarinnar.
Hönefoss vann 1-0 sigur gegn Lilleström. Kristján Örn Sigurðsson og Arnór Aðalsteinsson voru í byrjunarliði Hönefoss og Pálmo Rafn Pálmason í liði Lilleström.
Birkir Már Sævarsson er í byrjunarliði Brann sem er að leika gegn Tromsö. Staðan er markalaus eftir fyrri hálfleikinn.
Noregsmeistarar Molde gerðu markalaust jafntefli gegn Rosenborg. Molde er enn í neðsta sæti deildarinnar.


