Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 20. maí 2013 10:15
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Pepe til Manchester City?
Powerade
Hér að neðan má sjá helsta slúðrið úr enska boltanum í dag.



Juventus vill fá Carlos Tevez framherja Manchester City og Gonzalo Higuain framherja Real Madrid. (Daily Mirror)

Tottenham ætlar að reyna að krækja í Joao Moutinho miðjumann Porto í sumar. (The Sun)

Liverpool gæti reynt að krækja í Danny Rose varnarmann Tottenham en hann hefur verið í láni hjá Sunderland. (Daily Mail)

Andre Schurrle, framherji Bayer Leverkusen, vonast til að ganga í raðir Chelsea í sumar. (Sky Sports)

Hull er tilbúið að borga þrjár milljónir punda fyrir Peter Odemwingie framherja WBA . (Daily Mirror)

Norwich og Swansea hafa bæði áhuga á Harry Arter miðjumanni Bournemouth. (Sky Sports)

Carlos Tevez hefur áhuga á að ganga í raðir Monaco en hann er einnig til í að skoða það að ganga til liðs við PSG. (Gazzetta dello Sport)

Daniele Prade, yfirmaður íþróttamála hjá Fiorentina, segir að félagið eigi eftir að ákveða framtíð framherjans Stefan Jovetic en hann hefur verið orðaður við Arsenal, Manchester City og Juventus. (Tuttosport)

Pepe, varnarmaður Real Madrid, verður efstur á óskalista Manuel Pellegrini þegar hann tekur við Manchester City. (Marca)

Alvaro Negredo, framherji Sevilla, hefur hafnað tilboði frá West Ham en hann vill ganga til liðs við stærra félag. (Marca)

Michael Appleton, fyrrum stjóri Blackburn, Blackpool og Portsmouth, er að taka við Doncaster. (The Sun)

Aston Villa hefur hafið viðræður við Christian Benteke um nýjan samning. (Birmingham Mail)
Slapp