Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 20. maí 2013 18:51
Ívan Guðjón Baldursson
Pepsi-deild karla: KR með sigur í Eyjum - Þór vann nýliðaslaginn
Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson
Tveimur leikjum var að ljúka í Pepsi-deild karla þar sem KR lagði ÍBV í stórleik í Vestmannaeyjum á meðan Þór lagði Víking frá Ólafsvík á Þórsvelli.

Baldur Sigurðsson hefur byrjað tímabilið glæsilega hjá KR og kom gestunum verðskuldað yfir um miðjan fyrri hálfleik eftir gott samspil Gary Martin og Atla Sigurjónssonar.

Jónas Guðni Sævarsson bætti öðru marki við rétt fyrir lok fyrri hálfleiks og reyndist það lokamark leiksins, en hann skoraði eftir laglega stoðsendingu hins spræka Gary Martin.

Chukwudi Chijindu skoraði eina mark Þórsara í mjög tæpum sigri á Víkingi frá Ólafsvík, en markið kom rétt fyrir leikhlé.

Frekari umfjöllun birtist síðar.

ÍBV 0 - 2 KR
0-1 Baldur Sigurðsson ('24)
0-2 Jónas Guðni Sævarsson ('41)

Þór 1 - 0 Víkingur Ólafsvík
1-0 Chukwudi Chijindu ('43)
Slapp
banner