Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 20. maí 2013 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Rodgers: Carragher er goðsögn
Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool á Englandi, var að vonum ánægður með sigurinn á QPR í gær og endasprett liðsins á leiktíðinni.

Philippe Coutinho tryggði Liverpool stigin þrjú gegn QPR í gær, en Liverpool átti mjög svo góðan endasprett á tímabilinu, en liðið hafnaði í sjöunda sæti deildarinnar.

,,Sigurinn fullkomnaði frábæran endi á tímabilinu hjá okkur. Við værum til í að halda áfram að spila bara þar sem við höfum fundið okkar form og erum komnir í gírinn," sagði Rodgers.

,,Carragher er goðsögn. Þessi drengur, eftir 737 leiki hjá félaginu, er sönn goðsögn hjá þessu félagi. Frammistaða hans var rafmögnuð og ég vildi óska þess fyrir hann og fjölskyldu hans að þetta skot hefði farið inn."

,,Það hefur verið sönn ánægja að vinna með honum. Það eina sem ég sé eftir er að hafa ekki fengið tækfæri til þess að vinna lengur með honum,"
sagði hann að lokum.
Slapp
banner
banner