Einn leikur fer fram í spænsku deildinni í dag, en þá mætast Real Mallorca og Real Betis.
Real Betis er í baráttu um Evrópusæti á meðan Real Mallorca situr í neðsta sæti deildarinnar, en þó ekki fallið. Liðið þarf sárlega á sigri að halda til þess að eiga einhverja von á að halda sér uppi.
Leikur dagsins:
20:00 Real Mallorca - Real Betis





