Steve Harper kvaddi stuðningsmenn Newcastle United í gær, en hann ásamt mörgum öðrum frábærum knattspyrnumönnum ákvað að leggja skóna á hilluna eftir farsælan feril.
Harper lék allan leikinn er Newcastle tapaði fyrir Arsenal 0-1, en hann brast í grát eftir leikinn er stuðningsmenn félagsins kölluðu nafn hans og fögnuðu honum.
Hann hóf feril sinn hjá Newcastle og endaði þar. Hann var allan þennan tíma á samning hjá félaginu, en var þó lánaður í nokkur skipti, þar á meðal til Bradford City, Stockport County, Hartlepool, Brighton og Huddersfield.
,,Þetta hefur verið löng vika og þetta var ótrúleg leið til þess að hætta. Ég átti ekki skilið þennan fögnuð, en ég var virkilega ánægður með þetta," sagði Harper.
,,Þetta hefur verið magnaður rússibani síðustu 20 árin, en nú er kominn tími til þess að hætta þessu," sagði hann að lokum.



