,,Við fengum gullið tækifæri í seinni hálfleik með vind í bakið og manni fleiri að næla okkur í þrjú stig. En miðað við hvernig við mætum til leiks eigum við ekki meira skilið en eitt," sagði Tryggvi Guðmundsson leikmaður Fylkis eftir 2-2 jafntefli í Keflavík í kvöld.
,,Við vorum á eftir í öllum boltum í fyrri hálfleik og það er eins og menn séu ekki í þessu til að vinna. Það furðar mig. Við lögðum upp að mæta betur til leiks en við gerðum. Við þurfum að fara í naflaskoðun."
Tryggvi fiskaði vítaspyrnu þegar Andri Fannar Freysson fór í boltann og hann og fékk rauða spjaldið að launum. Aðspurður um það sagði hann.
,,Þetta var soft.Þetta er aldrei dýfa, báðir fara í boltann og það má vel vera að hann sé sekúndubroti á undan mér í boltann. Ég er svo líka tekinn og það er misjafnt hvernig dómarar meta þetta. Þetta er hart að menn fái líka rautt en það er líka samkvæmt reglunum. Svona er boltinn."
Nánar er rætt við Tryggva í sjónvarpinu að ofan.























