Grundarfjörður 3 - 2 Huginn
0-1 Marko Nikolic (27')
1-1 Dalibor Lazic (44')
1-2 Friðjón Gunnlaugsson (53')
2-2 Ingólfur Örn Kristjánsson(74')
3-2 Ingólfur Örn Kristjánsson (80)
0-1 Marko Nikolic (27')
1-1 Dalibor Lazic (44')
1-2 Friðjón Gunnlaugsson (53')
2-2 Ingólfur Örn Kristjánsson(74')
3-2 Ingólfur Örn Kristjánsson (80)
Grundarfjörður byrjaði íslandsmótið á því að taka á móti liði Hugins frá Seyðisfirði í nýju þriðju deildinni. Upphaflega átti þessi leikur að fara fram laugardaginn 18. maí en vegna óveðurs var honum frestað um sólarhring.
Sunnudaginn 19. maí var ennþá bálhvasst og leiknum var því frestað um 2 klukkustundir. Dómarinn flautaði svo leikinn á klukkan 19:30 en þá var komið hið ágætasta veður til knattspyrnuiðkunar.
Leikurinn var í góðu jafnvægi þar sem að bæði lið skiptust á að sækja og skapa sér færi. Huginn náði svo að skora á 27. mínútu þegar að Marko Nikolic náði að koma boltanum í netið eftir klafs í teig Grundfirðinga. Eftir þetta sóttu Grundfirðingar í sig veðrið og hófu stórsókn. Ingólfur Örn Kristjánsson komst í dauðafæri þegar að hann slapp einn innfyrir vörn Hugins en Atli Gunnar Guðmundsson markvörður sá við honum. Það var svo á 45. mínútu að Dalibor Lazic komst í gott færi sem að hann kláraði vel og jafnaði metin í 1-1. Huginn tók miðju og í því flautaði dómarinn til leikhlés.
Huginn byrjaði svo síðari hálfleikinn af miklum krafti og uppskar vítaspyrnu þegar að einum Huginsmanni var brugðið innan vítateigs á 52. mínútu. Friðjón Gunnlaugsson steig á vítapunktinn og skoraði af miklu öryggi fram hjá Viktori Erni Jóhannssyni sem að kom engum vörnum við. Gestirnir komnir í vænlega stöðu og drógu sig aðeins tilbaka og beittu skyndisóknum.
Sókn heimamanna þyngdist smátt og smátt og á 73. mínútu jafnaði Ingólfur Örn Kristjánsson metin þegar að hann slapp aftur einn innfyrir og í það skiptið kláraði hann færið af mikilli yfirvegun. Staðan orðin 2-2 og skammt eftir af leiknum.
Aðeins fimm mínútum síðar var Ingólfur Örn aftur á ferðinni þegar að hann fékk góða sendingu innfyrir vörn gestanna. Ingólfur gerði engin mistök þegar að hann skoraði fram hjá Atla í markinu og kom heimamönnum í 3-2. Grundfirðingar þéttu vörnina eftir þetta mark og náðu að halda út og innbyrða fyrsta sigur sumarsins. Þrjú stig staðreynd en Grundfirðingum var spáð neðsta sæti deildarinnar fyrir mót.
Hér að neðan má sjá fleiri myndir úr leiknum.



