Kári 1 - 9 Leiknir Fáskrúðsfirði
0-1 Fannar Bjarki Pétursson (víti)
0-2 Almar Daði Jónsson
0-3 Almar Daði Jónsson
0-4 Almar Daði Jónsson
0-5 Hilmar Freyr Bjartþórsson
1-5 Aron Örn Sigurðsson
1-6 Hilmar Freyr Bjartþórsson
1-7 Sjálfsmark
1-8 Hrannar Bogi Jónsson
1-9 Almar Daði Jónsson
0-1 Fannar Bjarki Pétursson (víti)
0-2 Almar Daði Jónsson
0-3 Almar Daði Jónsson
0-4 Almar Daði Jónsson
0-5 Hilmar Freyr Bjartþórsson
1-5 Aron Örn Sigurðsson
1-6 Hilmar Freyr Bjartþórsson
1-7 Sjálfsmark
1-8 Hrannar Bogi Jónsson
1-9 Almar Daði Jónsson
Káramenn fengu Leiknir frá Fáskrúðsfirði í heimsókn í dag í Akraneshöll. Um 70 manns mættu á leikinn sem var ótrúlegur í meira lagi.
Leiknismenn fengu draumabyrjun þegar þeir fengu vítapsyrnu á 2 mínútu leiksins þegar markvörður Kára felldi leikmann Leiknis inn í teig. Fannar Bjarki tók spyrnuna og skoraði eftir að markvörður Kára varði boltann í stöngina og inn.
Leiknismenn skoruðu aftur á 10. mínútu þegar boltinn barst til Almars Daða Jónssonar sem var aleinn á fjærstöng og potaði boltanum auðveldlega í markið.
Káramenn virtust loksins vakna við þetta mark og hófu harða hríð að marki Leiknis.
Á 11. mínútu komst framherji kára einn í gegnum vörn Leiknis, en skot hans fór beint í markvörð Leiknis. Á 18. mínútu fengu Kármenn aftur gott færi en skotið fór rétt framhjá. Mínútu seinna náðu Leiknismenn að bjarga á marklínu eftir gott færi Káramanna. Á 21. mínútu hélt sókn Kára áfram og í þetta sinn skutu Káramenn framhjá úr ákjósanlegu færi.
Leiknismenn sem virtust lúra aftarlega og beita stórhættulegum skyndisóknum náði frábæru sókn á 28 mínútu þegar þeir skoruðu sitt þriðja mark í leiknum og staðan orðin 0-3, Almar Daði var þar aftur að verki, en hann var langt frá því búinn.
Káramenn héldu áfram að sækja og á 35. mínútu varði markvörðu Leiknis vel frá kantmanni Kára og skömmu seinna fékk framherji Kára gott færi á markteig en hitti boltann illa. Markvörður Leiknis varði enn eitt færið frá Káramönnum á 40. mínútu, en tveimur mínútum seinna náðu Leiknismenn enn einni frábærri sókninni í leiknum og það færi nýtti Almar Daði frábærlega og staðan orðin 0-4 og Almar Daði kominn með þrennu í leiknum með ótrúlegri nýtingu.
Leiknismenn voru ekki hættir og náðu að skora fimmta markið sitt þegar Hilmar Freyr Bjartþórsson skoraði gott mark rétt áður en góður dómari leiksins flautaði til hálfleiks.
Ótrúlegur hálfleikur þar sem Káramenn áttu fínar sóknir sem þeir nýttu illa, en á móti refsuðu Leiknismenn þeim grimmilega með 5 mörkum, mörg úr frábærum skyndisóknum sem þeir nýttu ótrúlega vel. Staðan í hálfleik 0-5.
Káramenn komu ákveðnir til leiks og virtust ákveðnir í að bæta sinn hlut þrátt fyrir að staðan væri hálf vonlaus og á 49 mínútu náðu þeir að brjóta ísinn þegar Aron Örn hamraði boltann í samskeytinn úr markteig. Vonuðust Káramenn þá að lukkan færi nú að snúast þeim í hag í leiknum, en svo varð sko aldeilis ekki, nokkrum mínútum seinna fengu Káramenn ágætt færi þegar boltinn barst til leikmanns Kára sem þurfti bara að vippa boltanum í markið þar sem markvörður Leiknis var kominn vel út úr teignum, en vippan fór beint í hendurnar á markmanninum. Skömmu seinna áttu Káramenn góðan skalla að marki sem var varinn frábærlega og í kjölfarið kom svo annar skalli sem varnarmaður Leiknis varði á marklínu. Eftir þetta virtust Káramenn nánast búnir að gefast upp og Leiknismenn fóru að gefa í. Á um 67. mínútu fengu Leiknismenn dauðafæri, en nánast í fyrsta sinn í leiknum brást þeim bogalistin og klúðruðu færi. Það kom þó lítið að sök því skömmu seinna refsuðu þeir Káramönnum í sjötta sinn í leiknum þegar Hilmar Freyr skoraði sitt annað mark í leiknum og Leiknismenn algjörlega búnir að slátra leiknum.
Káramönnum sem var nánast fyrirmunað að skora í leiknum náðu svo að skora sjálfsmark á 78. mínútu leiksins þegar fyrirgjöf Leiknis datt á fjær þar sem boltinn fór klaufalega í netið af varnarmanni Kára. Kári átti ágætt færi skömmu seinna, en enn og aftur var það misnotað. Leiknir átti svo fínt færi á 87. mínútu en skotið fór rétt framhjá. Frábær markvörður Leiknis varði svo skot Káramanna á 89. mínútu eða rétt áður en Leiknismenn fóru í enn eina skyndisóknina sem endaði með marki, en þar var á ferðinni Hrannar Bogi Jónsson. Leiknismenn voru ekki hættir því á 91. mínútu kom síðasta mark leiksins þegar Almar Daði skoraði sitt fjórða mark í leiknum og níunda mark Leiknismanna í ótrúlegum leik þar sem Káramenn nýttu færi sín illa, en frábær markvörður Leiknis og mikill hraði og frábær nýting Leiknismanna gjörsamlega slátraði Káramönnum á heimavelli.


