Bergsveinn Ólafsson fyrirliði Fjölnis var að vonum sáttur með sigur liðsfélaga sinna í kvöld.
„Svona heilt yfir er ég tiltölulega sáttur. Þó svo við gerum engar rósir í fyrri hálfleik þá fannst mér við koma sterkir til baka í seinni hálfleik og það er mjög sterkt af okkur að gera það“ sagði Bergsveinn í samtali við Fótbolta.net.

Lestu um leikinn: Fjölnir 1 - 0 Keflavík
„Við fengum fullt af færum og fengum sömuleiðis engin færi á okkur og það verður að teljast jákvætt. 1-0 og ég er sáttur.“
„Við áttum sigurinn skilið. Þeir ógnuðu okkur aðeins í fyrri hálfleik en annars fannst mér lítil ógn af þeim og mér fannst við spila vel í seinni hálfleik. Við hefðum átt að klára þetta með öðru marki,“ sagði Bergsveinn.
“Ég er ánægður með að við komum til baka eftir tap í síðasta leik og vinnum gríðarlega mikilvægan leik. Það er styrkleikamerki frá okkur.“
Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir