„Fyrirfram komum við hérna til að ná í þrjú stig og við gerðum allt sem við gátum til þess," sagði Freyr Alexandersson þjálfari Leiknis eftir 2-2 jafntefli við ÍBV í eyjum í kvöld en liðið var í vandræðum með að komast til eyja og leiknum var frestað um 45 mínútur því leikmenn liðsins voru sjóveikir.
Lestu um leikinn: ÍBV 2 - 2 Leiknir R.
„Þetta er leikur sem mátti ekki tapast og ég held að við séum sáttari með stigið en þeir á þessum útivelli. Þessi dagur var gríðarlega erfiður fyrir okkur. Við tökum stigið í þetta skiptið."
„Leikurinn var í takt við það sem ég átti von á. Meðan við vorum ferskir vorum við góðir og við áttum fullt af góðum köflum. Svo var ofboðsleg þreyta í báðum liðum og leikurinn ofboðslega slitinn og opinn og menn að gera einstaklingsmistök og togna. vesen og bras, þetta var ekki góður fótboltaleikur."
Nánar er rætt við Frey í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir