Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
   mið 20. maí 2015 21:51
Gabríel Sighvatsson
Jói Harðar: Gríðarlegur léttir að skora fyrsta markið
Jóhannes Harðarson.
Jóhannes Harðarson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV og Leiknir R. gerður 2-2 í viðburðaríkum leik í Eyjum í dag. ÍBV er því loks komið á blað í deildinni og Leiknir náði í gott stig á útivelli.

Lestu um leikinn: ÍBV 2 -  2 Leiknir R.

„Ég var feykilega ánægður með frammistöðuna í dag og gríðarlega stoltur af því hvernig við komum til baka eftir að hafa fengið ódýrt mark á okkur á fyrstu sekúndum leiksins," sagði Jóhannes Harðarson, þjálfari ÍBV eftir leikinn.

ÍBV spilaði klárlega sinn besta leik það sem af er sumrinu og var Jói ánægður með sína menn. „Við spiluðum oft á tíðum frábæran fótbolta og sköpuðum slatta af færum og ég er mjög ánægðu með frammistöðuna," sagði Jói.

Fyrsta mark Eyjamanna á tímabilinu kom í dag þegar Víðir Þorvarðarson kom boltanum í netið á 20. mínútu. „Það var gríðarlegur léttir að sjá þann bolta fara inn og eins með seinna markið, það eina sem vantaði var þriðja markið," sagði Jói.


Athugasemdir
banner
banner
banner