Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   sun 20. maí 2018 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ísland í dag - 4. deildin fær sviðsljósið
Léttir fær heimsókn frá Geisla.
Léttir fær heimsókn frá Geisla.
Mynd: Léttir
Það er frekar rólegur sunnudagur í vændum í fótboltanum hér heima.

Ekki er spilað í efstu deildunum í dag, 4. deild karla fær sviðsljósið.

4. deildin hófst í gær með með fjórum leikjum en í dag eru þeir aðeins tveir. Það verður spilað í C-riðli og D-riðli.

Í C-riðli fær GG lið Afríku í heimsókn á Grindavíkurvelli og í D-riðlinum heimsækir Geisli úr Aðaldal Breiðholtið og mætir þar Létti.

Báðir leikirnir hefjast klukkan 16:00.

sunnudagur 20. maí

4. deild karla - C-riðill
16:00 GG-Afríka (Grindavíkurvöllur)

4. deild karla - D-riðill
16:00 Léttir-Geisli A (Hertz völlurinn)

Sjá einnig:
Passion league spáin - 4. deildin í sumar
Athugasemdir
banner
banner