Barcelona 1-0 Real Sociedad
1-0 Philippe Coutinho ('57)
1-0 Philippe Coutinho ('57)
Barcelona sigraði Real Sociedad í síðasta leik dagsins í spænsku úrvalsdeildinni. Fyrri hálfleikurinn var nokkuð tíðindalítill þar sem hvorugu liðinu tókst að skapa sér almennileg færi.
Eina mark leiksins skoraði Philippe Coutinho en markið var af dýrari gerðinni er hann skrúfaði boltanum í netið, óverjandi fyrir Moya í marki Real Sociedad.
Á 82. mínútu var svo Andrés Iniesta skipt af leikvelli. Leikurinn var sá síðasti sem hann spilar í treyju Barcelona en hann er á förum eftir leiktíðina. Átti hann í vandræðum með að halda aftur af tárunum.
Fleira markvert gerðist ekki í leiknum og Barcelona endar tímabilið með 93 stig á toppi deildarinnar.
Athugasemdir