Talið er að samband Antonio Conte og Willian sé ekki gott en brasilíski sóknartengiliðurinn hefur fengið lítinn spilatíma að undanförnu.
Willian kom inn af bekknum eins og oft áður í bikarsigri Chelsea gegn Manchester United í gær. Hann kom inn fyrir Eden Hazard á 91. mínútu og fékk aðeins fimm snertingar á boltann áður en flautað var til leiksloka.

Willian, sem hefur verið einn af betri leikmönnum Chelsea á tímabilinu, fagnaði sigrinum með liðsfélögunum og birti nokkrar myndir á Instagram aðganginum sínum, en er búinn að eyða einni þeirra.
Hann faldi nefnilega Antonio Conte á liðsmyndinni, með því að þekja hann bikurum.
Athugasemdir