Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   fim 20. júní 2013 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Álfukeppnin: Leikir dagsins - Nígería mætir Úrúgvæ
Tveir leikir eru á dagskrá í Álfukeppninni í kvöld þar sem heims- og evrópumeistarar Spánverja mæta áhugamannalandsliði Tahítí sem tapaði fyrsta leik mótsins með fimm marka mun gegn Nígeríu.

Úrúgvæ tapaði gegn Spánverjum í fyrstu umferð og er viðureign liðsins gegn Nígeríu í kvöld nánast hreinn úrslitaleikur um hvort liðið kemst áfram, svo lengi sem Spánverjum tekst að ljúka riðlinum með fullt hús stiga.

Í gestgjafariðlinum eru Brasilía og Ítalía þegar komin áfram á kostnað Japans og Mexíkó, þannig að Evrópa og Suður-Ameríka eru búnar að slá Asíu og N-Ameríku úr leik.

Í kvöld geta Spánverjar tryggt sig áfram á meðan Úrúgvæ og Nígería berjast um annað sætið.

Leikir dagsins:
19:00 Spánn - Tahítí
22:00 Nígería - Úrúgvæ
Slapp
banner
banner