Heimild: Caught Offside
Gonzalo Higuain, argentínskur sóknarmaður Real Madrid, er búinn að samþykkja samning frá Arsenal sem kaupir hann á 22 milljónir punda, samkvæmt breska miðlinum Daily Mirror.
Higuain fær 130 þúsund pund í vikulaun og verður þessi 25 ára gamli sóknarmaður dýrasti leikmaður í sögu Arsenal.
Higuain fær 130 þúsund pund í vikulaun og verður þessi 25 ára gamli sóknarmaður dýrasti leikmaður í sögu Arsenal.
Higuain verður því launahæsti leikmaður Arsenal sem hefur lengi verið á höttunum eftir góðum sóknarmanni.
Arsene Wenger reyndi að fá Stevan Jovetic frá Fiorentina en hann reyndist of dýr og erfiður að ná til svo Higuain kom sér mjög vel.
Higuain mun styrkja sóknarleik Arsenal til muna þar sem helstu stjörnurnar eru Theo Walcott, Lukas Podolski og Santi Cazorla ásamt hinum franska Olivier Giroud.


