Heimild: BBC
Lionel Messi, leikmaður Barcelona, þarf að mæta fyrir spænska dómstóla þann 17. september en hann er sakaður um skattsvik.
Messi og faðir hans eru sakaðir um að hafa svikið yfir fjórar milljónir evra undan skatti.
Þeir eru sakaður um að hafa notað fyrirtæki í Belize og Úrúgvæ til að hjálpa sér við skattsvikin.
Messi og faðir hans eru sakaðir um að hafa svikið yfir fjórar milljónir evra undan skatti.
Þeir eru sakaður um að hafa notað fyrirtæki í Belize og Úrúgvæ til að hjálpa sér við skattsvikin.
Messi fær um sextán milljónir evra í árslaun sem og margar milljónir í gegnum auglýsingasamninga en hann hefur lýst yfir sakleysi sínu í málinu.
Ef Messi verður dæmdur sekur gæti hann fengið allt að sex ára fangelsisdóm sem og mjög háa sekt.




