„Þetta er í baksýnisspeglinum," sagði Þorvaldur Örlygsson við 433.is í dag þegar hann var spurður út í viðskilnað sinn við Fram.
Þorvaldur hefur ekki svarað fjölmiðlum síðan hann lét óvænt af störfum hjá Fram en talaði nokkuð undir rós í viðtalinu í dag.
Þorvaldur hefur ekki svarað fjölmiðlum síðan hann lét óvænt af störfum hjá Fram en talaði nokkuð undir rós í viðtalinu í dag.
„Fram er með mjög gott lið núna en það voru aðrir sem vildu sjá einhvern annan í starfi. Þá ákvað ég að leyfa leikmönnum að anda aðeins, stíga til hliðar og leyfa þeim að spila fótbolta," sagði Þorvaldur.
„Maður er ekki fæddur í gær. Mér fannst þetta best í stöðunni og ákvað að stíga til hliðar. Ég átti mjög góð ár hjá Fram, starfaði með góðum leikmönnum og frábæru fólki. Þetta er virkilega gott og skemmtilegt félag og góðar aðstæður til að vinna við."
Eftir fyrrasumar urðu stjórnarskipti hjá Fram en formaðurinn Brynjar Jóhannsson hjá Fram sagði í viðtali að Þorvaldur hafi verið hættur síðasta haust en verið talaður inn á að vera áfram.
„Þetta var ekki fyrsta stjórnin sem ákvað að hætta og það voru svosem ekki margir eftir. Menn sannfærðu mig um að það væri þolinmæði en margt að hausti getur breyst að vori. Það er mikið stress þegar mótið byrjar," sagði Þorvaldur við 433.is en hann telur að núverandi leikmannahópur Fram geti gert góða hluti.
„Ég bjó til mjög gott lið og ég tel að núverandi lið sé það besta hjá Fram í langan tíma."
Þorvaldur tók í gær við þjálfarastarfinu hjá ÍA af Þórði Þórðarsyni sem sagði upp vegna dapurs árangurs í byrjun móts.




