Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   fim 20. júní 2013 11:16
Magnús Már Einarsson
Villas-Boas: Bale mun ekki fara frá Tottenham
Andre Villas-Boas, stjóri Tottenham, býst ekki við að Gareth Bale yfirgefi herbúðir félagsins í sumar.

Bale hefur verið sterklega orðaður við Real Madrid en spænska félagið hefur mikinn áhuga á leikmanninum.

Villas-Boas hafnaði tilboði frá PSG á dögunum en Marca segir að hann hafi ákveðið það eftir að hafa fengið loforð um að Bale verði áfram hjá Tottenham.

,,Við höfum loforð frá formanninum (Daniel Levy) um að Bale muni ekki yfirgefa félagið," sagði Villas-Boas við Marca í dag.
Slapp
banner
banner