lau 20. júní 2015 15:50
Eyþór Ernir Oddsson
Umfjöllun: Þorkell Þráinsson tryggði Ægi sigur á Tindastóli
watermark Ægir gerði góða ferð á Sauðárkrók í dag
Ægir gerði góða ferð á Sauðárkrók í dag
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Tindastóll 0-1 Ægir
0-1 Þorkell Þráinsson ('87)

Leik Tindastóls og Ægis var að ljúka rétt í þessu.

Fyrri hálfleikur var nánast tíðindalaus en bæði lið voru hálf bitlaus sóknarlega, en það voru heimamenn sem áttu aðal færin.

Ingvi Hrannar var nálægt því að koma heimamönnum yfir með ágætis skoti en boltinn rétt framhjá. Þá átti Arnar Skúli innrás í teiginn hægra megin þar sem boltinn var of fastur fyrir teiginn.

Tindastóll voru nálægt því að komast yfir strax í upphafi seinni hálfleiks þegar Konráð Freyr slapp einn í gegn í dauðafæri, en skot Konráðs fór framhjá.

Það leið ekki á löngu þar til Ægismenn áttu fyrstu alvöru marktilraun sína að marki Tindastóls en skallinn eftir hornspyrnu rataði framhjá markinu.

Fannar Örn átti mjög dauðafæri fyrir opnu marki en hann náði ekki að skalla boltan niður og boltinn fór yfir markið.

Þorkell Þráinsson kom Ægismönnum yfir þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir af leiknum en hann slapp í gegn um vörn Tindastóls og setti boltan í netið.

Fleira gerðist ekki og 1-0 sigur Ægismanna frá Þorlákshöfn staðreynd. Úrslitin þýða að Ægismenn eru komnir í áttunda sæti deildarinnar með sjö stig en Tindastóll sitja í ellefta sæti með þrjú stig, tveimur stigum á eftir KF sem eiga leik gegn Hetti nú klukkan 16:00.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner