Edda Garðarsdóttir var að vonum ekki mjög hress eftir leik KR-inga fyrr í kvöld gegn Val. Leikurinn endaði 5-0 fyrir Val og Edda fékk að sjá rauða spjaldið.
Lestu um leikinn: KR 0 - 5 Valur
„Fyrstu viðbrögð eru bara mjög svekkt og bara ósátt við mínar konur í fyrri hálfleik og bara ógeðslega tapsár, það bara er ekkert verra í fótbolta en að tapa fyrir Val“ sagði Edda strax eftir leik.
Valskonur komust yfir strax á 4.mínútu og KR-ingar áttu fá svör við sterkum leik Valsliðsins.
„Við féllum of aftarlega og gáfum þeim of mikið pláss að spila í og hlaupa í. Við vorum svosem alveg búnar að fara yfir þeirra sóknarleik og í upplegginu hefði þetta átt að vera í lagi en þær bara gerðu þetta rosalega vel. Voru margar hverjar mjög beittar í sóknarleiknum, Valsstelpurnar voru bara mjög klókar og útsjónarsamar og duglegar í kvöld“.
Edda Garðarsdóttir fékk eins og áður segir að líta rauða spjaldið eftir orðaskipti við dómarann í síðari hálfleik.
„Ég sagði enga ljóta hluti sko“ segir Edda. „Ég sagði eitthvað ertu ekki að grínast, er ekki í lagi heima hjá þér eða eitthvað svoleiðis ég man ekki nákvæmlega orð fyrir orð hvað ég sagði. Ég bara hagaði mér eins og krakki og missti stjórn á mér í augnablik.“
„Ég biðst bara afsökunar á því, þetta var bara barnaskapur af mér.“
Nánar er rætt við Eddu í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir