Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   þri 20. júní 2017 21:37
Guðrún Höskuldsdóttir
Harpa: Ég er tilbúin fyrir EM
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Harpa Þorsteinsdóttir lagði upp eina mark Stjörnunnar í 1-0 sigri á Fylki í 9. umferð á Samsung-vellinum í kvöld.

Harpa lék í kvöld sinn fyrsta byrjunarliðsleik á tímabilinu og lék í heilar 74. mínútur. Hún var ánægð með sigurinn í kvöld.

Lestu um leikinn: Stjarnan 1 -  0 Fylkir

„Þetta var virkilega mikilvægur sigur við mjög erfiðar aðstæður. Við erum mjög ánægðar með að hafa tekið þrjú stig útúr þessum leik," sagði Harpa sem segir Stjörnuliðið hafa verið vel undirbúið fyrir leikinn í kvöld.

„Við höfum skoðað vídeo af þeim og þær komu nokkurn vegin eins og við höfðum búist við þeim. Þær voru þéttar og baráttuglaðar."

„Standið er gott miðað við að þetta er fyrsti leikur. Ég vil alltaf gera betur og ég á fullt inni eftir þennan leik. En ég er ánægð," sagði Harpa sem segist vera tilbúin fyrir EM í júlí.

„Ég tel mig vera tilbúna til að fara á EM, en það er ekki mitt að meta. Ég hef unnið að því að koma mér í form svo ég sé allavegana möguleiki fyrir landsliðsþjálfarann. Það verður að koma í ljós. Ég er á lokametrunum í kapphlaupinu við tímann. Við verðum að sjá hvað sé ætlast til," sagði Harpa að lokum.

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner