Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 20. júní 2018 19:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Davíð Þór, Ásgeir Börkur og Rodri í leikbann
Davið Þór gjaldgengur í kvöld
Davíð Þór er kominn í bann en má þó spila gegn Val í kvöld
Davíð Þór er kominn í bann en má þó spila gegn Val í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Þrír leikmenn í Pepsi-deild karla hafa verið úrskuðaðir í leikbann af aganefnd KSÍ.

Það eru FH-ingurinn Davíð Þór Viðarsson, Fylkismaðurinn Ásgeir Börkur Ásgeirsson og Grindvíkingurinn Rodrigo Mateo Gomes.

Allir leikmennirnir þrír fara í eins leiks bann en þeir hafa allir fengið fjögur gul spjöld í sumar.

Bannið tekur gildi á föstudag og má því Davíð Þór spila gegn Valsmönnum í kvöld.

Hann verður í banni þann 1. júlí er FH mætir Stjörnunni.

Ásgeir Börkur og Rodri verða einnig í banni 1. júlí en þá mætir Fylkir Fjölnismönnum en Rodri verður ekki með Grindvíkingum gegn ÍBV.
Athugasemdir
banner
banner
banner