Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 20. júní 2018 23:00
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Flanagan á leið til Rangers
Flanagan mun hitta fyrrum liðsfélaga sinn, Steven Gerrard hjá Rangers
Flanagan mun hitta fyrrum liðsfélaga sinn, Steven Gerrard hjá Rangers
Mynd: Getty Images
Samkvæmt heimildum Sky fréttastofunnar var fyrrum varnarmaður Liverpool, Jon Flanagan í læknisskoðun hjá skoska stórliðinu Rangers í dag.

Aðstoðarþjálfari Rangers, Gary McAllister sagði að bakvörðurinn væri í viðræðum við félagið og að samningar væru nálægt því að klárast.

Rangers er í æfingaferð á Suður-Spáni þessa stundina og einhver dagblöð hafa greint frá því að Flanagan muni hitta nýju liðsfélaga sína þar.

Flanagan rann út á samningi hjá Liverpool í júní og kemur því frítt til Rangers.

Stjóri Rangers er Liverpool goðsögnin Steven Gerrard en hann og Flanagan voru liðsfélagar hjá Liverpool.
Athugasemdir
banner
banner
banner