Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 20. júní 2018 20:18
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Inkasso: ÍA með stórsigur á Magna
Albert skoraði fyrsta og síðasta mark ÍA í kvöld
Albert skoraði fyrsta og síðasta mark ÍA í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
ÍA 5 - 0 Magni
1-0 Albert Hafsteinsson ('16)
2-0 Bjarki Steinn Bjarkason ('19)
3-0 Steinar Þorsteinsson ('43)
4-0 Þórður Þorsteinn Þórðarson ('72, víti)
5-0 Albert Hafsteinsson ('76)

ÍA mættir nýliðum Magna í fyrsta leik kvöldsins í Inkasso deildinni en leikurinn fór fram á Akranesi.

ÍA byrjuðu vel og staðan var orðin 2-0 eftir 20. mínútna leik.

Albert Hafsteinsson skoraði fyrsta mark leiksins og tvöfaldaði Bjarki Steinn Bjarkason síðan forystuna á 19. mínútu.

Allt virtist stefna í að ÍA leiddi 2-0 í hálfleik en Steinar Þorsteinsson var ekki alveg til í það og bætti hann við þriðja marki ÍA rétt fyrir hálfleik.

Skagamenn voru ekki hættir í seinni hálfleik og skoraði Þórður Þorsteinn Þórðarson úr vítaspyrnu á 72. mínútu og skömmu síðar bætti Albert við fimmta marki ÍA og öðru marki sínu.

Lokatölur 5-0 stórsigur Skagamanna á Magna og halda Skagamenn toppsæti sínu en Magni situr á botninum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner