West Ham hefur fest kaup á Lukasz Fabianski, markverði Swansea City og pólska landsliðsins. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við Hamrana.
West Ham hefur verið í leit að nýjum markverði en það er nokkuð ljóst að Joe Hart er á förum frá félaginu eftir að hafa verið á lán ifrá Manchester City.
Verðmiðinn er talinn vera nálægt sjö milljónum punda og Fabianski er þriðju kaup West Ham í sumar á eftir þeim Ryan Fredericks og Issa Diop.
Fabianski er staddur á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi þessa dagana þar sem hann er varamarkvörður Pólska landsliðsins. Hann sat því allan tímann á bekknum þegar Senegal vann góðan sigur á Pólverjum í gær.
See you after the World Cup, Łukasz! #WelcomeFabianksi pic.twitter.com/dGTsoJzlXo
— West Ham United (@WestHamUtd) June 20, 2018
Athugasemdir