Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   mið 20. júní 2018 21:07
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Páll Viðar: Ekkert handklæði komið á loft á Grenivík
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Páll Viðar Gíslason, þjálfari Magna var að vonum svekktur með 5-0 tap gegn ÍA á útivelli í kvöld.

Lestu um leikinn: ÍA 5 -  0 Magni

„Maður er því miður orðinn svolítið vanur þessu. Þetta er fimmti útileikurinn og þriðji leikurinn sem við erum 3-0 undir í hálfleik. Það er svolítið sárt,"

Gengi Magna á útivöllum hefur verið afar slappt í sumar og hafa þeir tapað öllum fimm útileikjum sínum í sumar með markatölunni 16-3.

„Þetta er búið að vera rosaleg brekka hjá okkur á útivöllum og við þurfum að fara í frekari naflaskoðun. Við verðum að reyna að fá eitthvað meira úr þessum útileikjum, allavega að gefa liðunum leiki."

Magni eru þó ekki búnir að kasta hvíta handklæðinu og ætla að gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að halda sæti sínu í deildinni.

„Nú fer að styttast í það að við verðum komnir það mikið upp við vegginn að við verðum að ná í stig svo liðin fyrir ofan okkur fari ekki að henda okkur niður strax. Það er ekkert handklæði komið á loft á Grenivík."
Athugasemdir
banner
banner
banner