Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 20. júní 2018 12:39
Ívan Guðjón Baldursson
Sky: Fred kynntur á morgun
Mynd: Getty Images
Sky Sports heldur því fram að brasilíski miðjumaðurinn Fred verði staðfestur sem nýr leikmaður Manchester United á morgun.

Fred er með brasilíska landsliðinu á HM sem stendur en samkvæmt enskum fjölmiðlum hefur hann staðist læknisskoðun og skrifað undir samning við Rauðu djöflana.

Man Utd er talið greiða rúmlega 50 milljónir punda fyrir miðjumanninn sem er 25 ára gamall og á 8 A-landsleiki að baki.

Fred kemur frá úkraínska félaginu Shakhtar Donetsk þar sem hann hefur verið lykilmaður undanfarin fimm ár.
Athugasemdir
banner
banner
banner