fim 20. júlí 2017 09:50
Magnús Már Einarsson
Barkley eða Verratti á miðjuna hjá Man Utd?
Powerade
Ross Barkley gæti verið á leið til Manchester United.
Ross Barkley gæti verið á leið til Manchester United.
Mynd: Getty Images
Naby Keita er á óskalista Liverpool.
Naby Keita er á óskalista Liverpool.
Mynd: Getty Images
Ensku slúðurblöðin halda áfram að moka út slúðri. Kíkjum á pakka dagsins.



PSG ætlar að ræða við Barcelona um kaup á Neymar (25) á 196 milljónir punda. (Guardian)

PSG er reiðbúið að borga Neymar 45 milljónir punda við undirskrift og samning upp á 596 þúsund pund í laun á viku eftir skatt. (Daily Mail)

Manchester United og Chelsea skoðuðu bæði Neymar en hættu við eftir að hafa heyrt af 196 milljóna punda verðmiðanum. (Mail)

Chelsea vill fá 44 milljónir punda fyrir Diego Costa (28) en Atletico Madrid vill fá hann aftur í sínar raðir. Chelsea er hins vegar að kaupa Alvaro Morata (24) frá Real Madrid. (Independent)

Enrique Cerezo, forseti Atletico Madrid, hefur blásið á sögusagnir þess efnis að Costa sé aftur á leið til félagsins. (Mirror)

Liverpool er tilbúið að bjóða 70 milljónir punda í Naby Keita (22) miðjumann RB Leipzig eftir að 66 milljóna punda tilboði var hafnað. (Mirror)

West Ham er að ganga frá kaupum á Javier Hernandez (29) frá Bayer Leverkusen. (Sky Sports)

Arsenal hefur sagt West Ham að félagið þurfi að borga 20 milljónir punda til að landa Jack Wilshere (25). (Daily Star)

Manchester City er að landa Benjamin Mendy (23) vinstri bakverði Mónakó. (Times)

Manchester United gæti reynt að fá Marco Verratti (24) miðjumann PSG eftir að Mino Raiola tók við sem umboðsmaður hans. (Sun)

Manchester United er einnig að skoða stöðu Ross Barkley (23) en hann er líklega á förum frá Everton. (Mirror)

Barkley vill fara til Tottenham eftir að hafa heyrt góða dóma um Mauricio Pochettino stjóra félagsins. (Standard)

Inter hefur sagt Manchester United að Ivan Perisic (28) sé ekki falur nema Anthony Martial (21) komi í hina áttina. (Independent)

Everton er að landa Lewis Gibson (17) varnarmanni Newcastle. (Liverpool Echo)

Newcastle hefur boðið Lyon að kaupa framherjann Aleksandar Mitrovic (22) á 16 milljónir punda. (Talksport)

Aston Villa er að landa miðjumanninum Glenn Whelan (33) frá Stoke. (Birmingham Mail)
Athugasemdir
banner
banner
banner