fim 20. júlí 2017 10:43
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Morata lentur í London
Mynd: Getty Images
Alvaro Morata er kominn til London og er á leið í læknisskoðun hjá Chelsea í dag.

Fréttamaður Sky Sports náði af honum tali á Heathrow flugvellinum í London í morgun og spurði Morata hvers vegna Chelsea hafi verið fyrir valinu.

„Af því þetta er besta liðið. Antonio Conte er einn besti þjálfari í heimi og ég er mjög ánægður með það að fá að vinna með honum."

Morata var talinn vera á leiðinni til Manchester United fyrr í sumar, hann var spurður hversu nálægt því hann hafi verið að ganga til liðs við Manchester United.

„Ég veit það ekki, það mikilvægasta er að ég er kominn hingað, loksins. Bara læknisskoðunin og eftir það er allt klappað og klárt. Þetta er ein besta deild í heimi, og ég er svo ánægður með að vera kominn hingað," sagði Morata.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner