QPR hefur fengið hollenska miðjumanninn Leroy Fer í sínar raðir frá Norwich.
Fer skrifaði undir þriggja ára samning við QPR í dag.
Þessi 24 ára gamli leikmaður kom við sögu með hollenska landsliðinu á HM í sumar.
Fer skrifaði undir þriggja ára samning við QPR í dag.
Þessi 24 ára gamli leikmaður kom við sögu með hollenska landsliðinu á HM í sumar.
,,Það var alltaf draumur minn að vera áfram í ensku úrvalsdeildinni," sagði Fer eftir undirskriftina í dag.
,,QPR stóð sig vel og komst upp á síðasta tímabili og það er fullt af topp leikmönnum í hópnum. Ég er ánægður með að vera hér."
Athugasemdir