Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
   mið 20. ágúst 2014 11:00
Arnar Daði Arnarsson
Harpa: Fínt að fá sumarið þessa vikuna
Harpa hress á æfingu.
Harpa hress á æfingu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Það er frábært að mæta þeim á þessum tímapunkti. Það er stutt síðan við mættum þeim síðast. Það kom þeim á óvart hvernig við mættum þeim síðast og þær koma örugglega smá smeykar hingað," sagði markadrottningin, Harpa Þorsteinsdóttir leikmaður íslenska landsliðsins og Stjörnunnar.

Ísland mætir Danmörku í undankeppni HM á fimmtudaginn næstkomandi, á Laugardalsvelli klukkan 19:30.

,,Það er fínt að fá sumarið þessa vikuna, eina vikuna í sumar nánast. Við ætlum að gera sem best úr þessu," sagði Harpa Þorsteinsdóttir, ánægð með sólina sem lét sjá sig rétt fyrir viðtalið. Hún var mætt á hádegisæfingu með landsliðinu, eftir stuttan vinnudag á leikskólanum.

,,Ég fór í vinnuna í morgun og mætt núna á æfingu í hádeginu, það er ljúft. Ég fæ síðan frí eftir æfingu og við förum upp á hótel og slökum á og einbeitum okkur að leiknum."

,,Það má búast við erfiðum leik en skemmtilegum. Fyrri leikurinn var að minnsta kosti skemmtilegur. Ég vona að sem flestir komi á leikinn og taki þátt í þessu með okkur. Við þurfum að sækja til sigurs. Þetta er gríðarlega mikilvægur leikur og við ætlum okkur að vera einbeittar á það að ná sigri," sagði Harpa Þorsteinsdóttir.

Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner