Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 20. ágúst 2014 11:15
Magnús Már Einarsson
Liverpool búið að gera tilboð í Balotelli?
Mario Balotelli.
Mario Balotelli.
Mynd: Getty Images
Liverpool hefur lagt fram 17,5 milljóna punda tilboð í Mario Balotelli framherja AC Milan.

Ítalska vefsíðan MediaSet heldur þessu fram í dag.

Liverpool er ennþá í leit að framherja til að fylla skarð Luis Suarez sem fór til Barcelona á dögunum.

Balotelli hefur verið orðaður við Liverpool og Arsenal í sumar og MediaSet segir að fyrrnefnda félagið hafi nú lagt fram tilboð í leikmanninn.

Balotelli ku sjálfur vera til í að fara annað til að fá að spila í Meistaradeildinni.
Athugasemdir
banner
banner