mið 20. ágúst 2014 18:00
Magnús Már Einarsson
Penninn áfram á lofti hjá Manchester City - Dzeko framlengir
Edin Dzeko.
Edin Dzeko.
Mynd: Getty Images
Manchester City heldur áfram að framlengja samninga við lykilmenn sína en Edin Dzeko hefur nú skrifað undir fjögurra ára samning sem gildi til ársins 2018.

Aleksandar Kolarov, Samir Nasri, Silva, Vincent Kompany og Sergio Aguero hafa allir framlengt samning sinn við Mancheste City í sumar og Dzeko hefur nú bæst í hópinn.

Dzeko hefur skorað 66 mörk í 155 leikjum með Manchester City síðan hann kom til félagsins frá Wolfsburg í janúar árið 2011.

,,Ég er mjög ánægður hér hjá City. Þetta er annað heimili mitt og það var auðveld ákvörðun að framlengja," sagði Dzeko.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner