Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 20. ágúst 2017 17:20
Matthías Freyr Matthíasson
Byrjunarlið Víkings R og KA: Rúta KA-manna bilaði á leiðinni
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Víkingur Reykjavík tekur á móti norðanmönnunum í KA kl. 18:00 í dag í 16. umferð Pepsí deildar karla í knattspyrnu. KA-menn urðu fyrir skakkaföllum á leið í bæinn því að rútan bilaði á leiðinni og þurftu þeir að stíga upp í aðra rútu í Borganesi kl. 16:20 c.a. og er því um seinkun að ræða í undirbúningi hjá þeim.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu

Víkingar eru búnir að vera á sæmilegu róli í deildinni og eru þeir ósigraðir í síðustu þremur leikjum. Þeir unnu síðasta leik á móti Breiðablik og var þar Geoffrey Castillion sem skoraði bæði mörk Víkinga í þeim leik og er mikilvægt fyrir þá að vera búnir að fá hann í gott spilform. Víkingar gera tvær breytingar frá leiknum á móti Blikum. Gunnlaugur Fannar og Dofri Snorrasson koma inn.

Gestirnir í KA hafa ekki unnið leik í síðustu 4 leikjum sínum og reyndar er það svo að síðasti sigurleikur þeirra kom þann 16. júlí eða fyrir meira en mánuði síðan. KA menn eru ekki búnir að koma sér endanlega í burtu frá fallbaráttunni og er sigur nauðsynlegur fyrir þá í kvöld til að koma í veg fyrir að þeir sogist að fullu í baráttuna. KA gerir einnig tvær breytingar frá leiknum á móti Stjörnunni. Archange Nkumu og Steinþór Freyr koma inn í liðið

Byrjunarlið Víkings R
1. Róbert Örn Óskarsson (m)
3. Ívar Örn Jónsson
5. Milos Ozegovic
6. Halldór Smári Sigurðsson
7. Alex Freyr Hilmarsson
11. Dofri Snorrason
17. Gunnlaugur Fannar Guðmundsson
20. Geoffrey Castillion
21. Arnþór Ingi Kristinsson
22. Alan Lowing
25. Vladimir Tufegdzic

Byrjunarlið KA
23. Srdjan Rajkovic (m)
3. Callum Williams
7. Almarr Ormarsson
8. Steinþór Freyr Þorsteinsson
9. Elfar Árni Aðalsteinsson
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson (f)
11. Ásgeir Sigurgeirsson
19. Darko Bulatovic
22. Hrannar Björn Steingrímsson
25. Archie Nkumu
26. Vedran Turkalj
Athugasemdir
banner
banner