Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 20. ágúst 2017 05:55
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
England í dag - Lundúnaslagur á Wembley
Þessir stjórar mætast í dag á Wembley.
Þessir stjórar mætast í dag á Wembley.
Mynd: Getty Images
Önnur umferð ensku úrvalsdeildarinnar heldur áfram í dag en hún hófst í gær með sjö leikjum, í dag eru tveir leikir á dagskrá.

Fyrri leikur dagsins er nýliðaslagur Huddersfield og Newcastle, heima liðið byrjaði betur í deildinni og tók þrjú stig í fyrsta leik, gestirnir í Newcastle eru hins vegar stigalausir eftir fyrstu umferð.

Klukkan 15:00 verður flautað til leiks í stórleik helgarinnar þegar Tottenham og Chelsea mætast á Wembley.

Tottenham tók öll þrjú stigin þegar þeir heimsóttu Newcastle í fyrstu umferð en Chelsea tapaði heima gegn Burnley.

Sunnudagur 20. ágúst
12:30 Huddersfield - Newcastle (Stöð 2 Sport)
15:00 Tottenham - Chelsea Stöð 2 Sport)

Athugasemdir
banner
banner