Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 20. ágúst 2017 22:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
ESPN: Zlatan skrifar undir hjá United í vikunni
Mynd: Getty Images
Heimildarmenn á vegum ESPN segja að Zlatan Ibrahimovc muni skrifa undir hjá Manchester United í vikunni.

Zlatan er að jafna sig af erfiðum meiðslum sem hann varð fyrir í leik með United gegn Anderlecht í Evrópudeildinni á síðasta tímabili. Búist var við því að hann yrði frá fram að áramótum.

Endurhæfing hans hefur hins vegar gengið vonum framar og talið er að hann sé að fara að skrifa undir samning við rauðu djöflana.

Hann lék með Manchester United á síðasta tímabili, en samningur hans rann út í júní. Hann fékk ekki nýjan samning strax vegna meiðslana, en félagið er að semja við hann núna.

Zlatan mun taka á sig launalækkun frá síðasta tímabili þar sem hann verður ekki í eins stóru hlutverki núna.



Athugasemdir
banner
banner
banner