Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   sun 20. ágúst 2017 18:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Wagner: Við erum Huddersfield, ekki gleyma því
Mynd: Getty Images
David Wagner er að gera frábæra hluti með Huddersfield Town.

Huddersfield er nýliði í ensku úrvalsdeildinni, en þeir hafa farið mjög vel af stað. Þeir unnu Crystal Palace í fyrsta leik sínum 3-0 og í dag lögðu þeir Newcastle United, 1-0, í nýliðaslag.

Huddersfield er að spila í efstu deild í fyrsta sinn síðan 1972 og árangurinn hingað til hefur komið mörgum á óvart.

Wagner er skiljanlega mjög sáttur með byrjunina, en hann ræddi við blaðamenn eftir sigurinn á Newcastle í dag.

„Við erum Huddersfield Town, ekki gleyma því. Við komust upp í ensku úrvalsdeildina með því að vinna umspilsleik á Wembley. Við höfum byrjað þetta tímabil með því að vinna tvo leiki og halda tvisvar sinnum hreinu. Þetta er ótrúlegt," sagði Wagner.

Næsti leikur Huddersfield er gegn Southampton og það verður spennandi að sjá hvað þeir gera í þeim leik.
Athugasemdir
banner
banner
banner