lau 20. september 2014 20:00
Grímur Már Þórólfsson
Allardyce: Áttum sigurinn algjörlega skilið
Sam Allardyce
Sam Allardyce
Mynd: Getty Images
Sam Allardyce lýsti sigri sinna manna í dag sem algjörlega frábærum.

West Ham sigraði Liverpool í dag 3-1 og skiljanlega var Stóri Sam kampakátur.

„Þetta gæti ekki verið betra, gegn eitt af toppliðunum.“

„Þetta var verðskuldaður sigur, ekki einhver heppni. Þetta var ekki Liverpool að spila illa, þetta var bara West Ham að spila frábærlega í dag.“

„Frammistaðan í fyrri hálfleik var algjörlega fyrsta flokks, ég held meira að segja að við hefðum átt að vera þremur til fjórum mörkum yfir í hálfleik.“

„Við vissum að Liverpool myndi koma til baka á einhverjum tímapunkti og pressa á okkur en við vörðumst vel.“

„Við erum með nokkra nýja leikmenn, þeir eru að aðlagast vel og eru að standa sig frábærlega á vellinum.“

„Þetta var frábært einstaklingsframtak hjá Sakho. Ég held að enginn geti sett út á gæðin í afgreiðslunni,“ sagði Sam Allardyce.

Athugasemdir
banner