„Þetta var mjög líflegur leikur,“ sagði Bjarni Jóhannsson þjálfari KA eftir leik. „Sérstaklega í seinni hálfleik. Ágætis leikur yfir heildina sem gat dottið báðu megin hér í lokin.“
Lestu um leikinn: KA 2 - 2 ÍA
„Þetta mót var nánast búið fyrir þremur uymferðum síðan en mér fannst nú samt að menn væru að reyna. Í þessu frábæra veðri og fínu aðstæðum þá var þetta bara þræl líflegur leikur, 2-2 og fullt af færum.“
Það er vinsæl skoðun að KA hafi í raun kastað mótinu frá sér strax í upphafi
„Já, byrjunin var mjög erfið hjá okkur. Okkur tókst svo að púsla liðinu ágætlega saman á tímabili og vorum að spila mjög vel á köflum að mínu mati. Við erum á pari sóknarlega í þessari deild en á kostnað þess að við fáum of mörg mörk á okkur."
En verður Bjarni áfram með KA?
„Já, ég verð hér áfram. Ég veit ekki annað. Það er bara að halda áfram og þróa liðið enn betur, það er ekkert öðruvísi.“
Nánar er rætt við Bjarna í sjónvarpinu hér að ofan
Athugasemdir