Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 20. september 2014 15:12
Jón Stefán Jónsson
Gríðarleg spenna í fallbaráttu 2. deildar
Ná Völsungar að bjarga sér?
Ná Völsungar að bjarga sér?
Mynd: Rafnar Orri Gunnarsson
Gríðarleg spenna er nú í fallbaráttu 2.deildar karla en seinni hálfleikur var að hefjast í leikjum dagsins.

Völsungar sem fyrir leikinn voru í neðsta sæti deildarinnar eru 1-0 yfir gegn Sindra á Hornafirði. Á Seyðisfirði er Njarðvík yfir 2-1 gegn Huginn, í Sandgerði eru heimamenn 0-1 undir gegn Fjarðabyggð og í Mosfellsbæ er 0-0 hjá Aftureldingu og Ægi.

Miðað við þessa stöðu eru Völsungur og Reynir fallin en tapi Afturelding gegn Ægi fer Völsungur uppfyrir þá og bjargar sæti sínu svo lengi sem Reynir nái ekki að vinna Fjarðabyggð.
Athugasemdir
banner
banner