Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 20. september 2014 10:43
Elvar Geir Magnússon
Rússland: Fyrsti sigur Sölva og félaga í höfn
Sölvi Geir Ottesen.
Sölvi Geir Ottesen.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í áttundu tilraun tókst rússneska liðinu Ural að taka sinn fyrsta sigur á tímabilinu. Liðið er með fjögur stig í næstneðsta sæti eftir að hafa lagt FC Ufa í dag.

Ural vann ansi mikilvægan 1-0 útisigur þar sem Aleksandr Erohin skoraði eina markið á 42. mínútu.

Íslenski landsliðsmaðurinn Sölvi Geir Ottesen lék allan leikinn í vörn Ural.

Ragnar Sigurðsson og félagar í FC Krasnodar eru í sjöunda sæti af sextán liðum deildarinnar en þeir eiga leik á mánudag gegn Amkar sem er í tólfta sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner