Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 20. september 2014 20:30
Grímur Már Þórólfsson
Spánn: Jafntefli hjá Atletico Madrid
Diego Godin fagnar marki sínu í dag
Diego Godin fagnar marki sínu í dag
Mynd: Getty Images
Atletico Madrid og Celta Vigo áttust við í dag en leikurinn endaði með jafntefli.

Gestirnir komust yfir á 19. mínútu með marki Pablo Hernandez.

Miðvarðapar Atletico, þeir Miranda og Godin tókst þó að skora sitthvort markið og Atletico leiddi því í hálfleik.

Í síðari hálfleik fengu gestirnir svo vítaspyrnu og úr henni skoraði Nolito. Lokastaðan því 2-2 jafntefli.

Fyrr í dag áttust Atletic Bilbao og Granada við en hann endaði með 1-0 útisigri Granada.

Atletico Madrid 2 - 2 Celta
0-1 Pablo Hernandez ('19 )
1-1 Miranda ('31 )
2-1 Diego Godin ('41 )
2-2 Nolito ('53 , víti)

Athletic 0 - 1 Granada CF
0-1 Jhon Cordoba ('39 )
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner