Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 20. september 2014 18:50
Grímur Már Þórólfsson
Þýskaland: Mainz lagði Dortmund
Kagawa í leiknum í dag
Kagawa í leiknum í dag
Mynd: Getty Images
Mainz 2-0 Dortmund
1-0 Okazaki (´66)
2-0 Ginter (´74 sjálfsmark)

Síðasti leikur dagsins í þýsku Bundesligunni endaði með 2-0 sigri Mainz á Dortmund.

Dortmund sigraði Arsenal örugglega í meistaradeildinni í vikunni en annað var upp á teningunum í dag.

Fyrsta markið kom ekki fyrr en á 66. mínútu en það var japanski landsliðsmaðurinn Shinji Okazaki sem skoraði það.

Heimamenn bættu svo við öðru marki á 74. mínútu en það var sjálfsmark hjá Mattias Ginter.

Niðurstaðan því 2-0 sigur Mainz og Dortmund því búnir að tapa tveimur af fyrstu fjórum leikjunum í deildinni.
Athugasemdir
banner