Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 20. september 2014 15:51
Alexander Freyr Tamimi
Vine-myndband: Rosalegt mark Chicharito fyrir Real
Javier Hernandez.
Javier Hernandez.
Mynd: Getty Images
Margir undruðust það þegar Javier Hernandez, einnig þekktur sem Chicharito, var lánaður til Real Madrid frá Manchester United í sumar.

Lið Real Madrid er stjörnum prýtt og var ekki séð fram á að mexíkóski landsliðsmaðurinn, sem var varaskeifa á Old Trafford á síðustu leiktíð, fengi mikinn spiltíma.

Chicharito fékk þó tækifærið gegn Deportivo La Coruna í dag, þegar hann kom inn á sem varamaður fyrir Gareth Bale á 77. mínútu, og nýtti það tækifæri með stórkostlegu marki sem kom Real Madrid í 7-2.

Þess má geta að Hernandez skoraði aftur á 90. mínútu og gulltryggði 8-2 sigur Real.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner