Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mið 20. september 2017 15:13
Elvar Geir Magnússon
Fjórir leikmenn Man Utd fengu frí frá leik kvöldsins
Sergio Romero verður væntanlega í markinu í kvöld.
Sergio Romero verður væntanlega í markinu í kvöld.
Mynd: Getty Images
David De Gea, Antonio Valencia, Nemanja Matic og Eric Bailly eru ekki með Manchester United í kvöld þegar liðið leikur gegn Burton Albion í deildabikarnum á Old Trafford.

Burton er í 19. sæti Championship-deildarinnar.

Jose Mourinho, stjóri Manchester United, mun dreifa álaginu og gefa mönnum tækifæri í kvöld. Vinstri bakvörðurinn Luke Shaw gæti byrjað en hann hefur verið að glíma við meiðsli.

Manchester United er ríkjandi deildabikarmeistari.

Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19:00.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner