mið 20. september 2017 09:16
Magnús Már Einarsson
Halldór Smári og Milos Ozegovic áfram hjá Víkingi R.
Halldór Smári Sigurðsson.
Halldór Smári Sigurðsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur R. hefur framlengt samninga við Halldór Smára Sigurðsson og Milos Ozegovic.

Halldór Smári skrifaði undir þriggja ára samning sem gildir út tímabilið 2020 en Ozegovic gerði samning sem gildir út tímabilið 2018.

„Knattspyrnudeild Víkings lýsir mikilli ánægju með að hafa komist að samkomulagi við Halldór Smára Sigurðsson og Milos Ozegovic um að þeir leiki áfram með félaginu eftir yfirstandandi tímabil," segir í fréttatilkynningu frá Víkingi.

Halldór Smári er leikjahæsti núverandi leikmaður félagsins og hefur leikið 261 leiki fyrir félagið. Halldór lék framan af ferlinum á miðjunni og síðar í vinstri bakverði. Undanfarin ár hefur hann hins vegar eignað sér stöðu miðvarðar og er að margra áliti að eiga sitt besta tímabil nú í sumar.

Halldór Smári hefur verið í byrjunarliði í öllum leikjum Víkings í deildinni í sumar og ef fram heldur sem horfir gæti hann orðið leikjahæsti leikmaður í sögu félagsins á samningstímanum.

„Það er klárlega eitthvað sem ég er með annað augað á, að ná metinu. Ég á 100 leiki í það og ég ætti alveg að geta náð því," sagði Halldór í skemmtilegu viðtali við Fótbolta.net í vor.

Varnarsinnaði miðjumaðurinn Milos Ozegovic kom til Víkings frá serbneska félaginu Radnicki Pirot í febrúar á þessu ári. Hann hefur spilað 17 leiki í Pepsi-deildinni í sumar og skorað eitt mark.

Sjá einnig:
Lögfræðingurinn sem á hátt í hundrað skópör (Viðtal frá því í maí)
Athugasemdir
banner
banner
banner