Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 20. september 2017 14:00
Magnús Már Einarsson
Joe Ledley í viðræðum við Derby
Mynd: Getty Images
Derby County í ensku Championship deildinni er í viðræðum við miðjumanninn Joe Ledley.

Hinn þrítugi Ledley yfirgaf Crystal Palace í sumar eftir þriggja ára dvöl hjá félaginu.

Þar sem Ledley er án félags þá má hann skrifa undir hjá nýju félagi þó félagaskiptaglugginn sé lokaður.

Ledley hefur hafnað tilboðum utan Englands en hann gæti nú farið til Derby.

Ledley er í landsliðshópi Wales en hann kom ekkert við sögu í tveimur leikjum í undankeppni HM fyrr í mánuðinum.
Athugasemdir
banner
banner
banner